Tveir af hverjum þremur nýorkubíll

Nýorkubíll, knúinn vetnisrafala.
Nýorkubíll, knúinn vetnisrafala. mbl.is/Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Tveir af hverjum þremur seldra nýrra bíla það sem af er ári voru svonefndier nýorkubíla, eða 65,5%. Hefur hlutfall rafmagns-, tengiltvinn-, tvinn- og metanbíla aukast jafnt og þétt, að sögn Bílgreinasambandsins (BGS).

Að sögn BGS er vöruúrval stöðugt að aukast með fleiri valkostum (rafmagn 19,2%, tengiltvinn 24,4% og tvinn 22%) en þetta hlutfall var í heildina 51,4% á sama tíma á síðasta ári. 

Í heildina eftir fyrstu sjö mánuði ársins hefur bílasalan aukist um 37% miðað við sama tímabil í fyrra. Í ár hafa selst 7770 nýir fólksbílar samanborið við 5673 í fyrra. 

Til einstaklinga seldust 499 nýjir fólksbílar í júlí saman borið við 524 á sama tíma í fyrra og er því samdráttur í sölu til einstaklinga 4,8% milli ára í júlí.

Það sem af er ári hafa selst 3206 nýir fólksbílar til einstaklinga en í fyrra á sama tíma var búið að selja 2966 eintök sem þýðir aukningu í sölu til einstaklinga upp á 8,1% það sem af er ári.

Almenn fyrirtæki (önnur en ökutækjaleigur) keyptu 119 nýja fólksbíla í júlí í ár miðað við 184 í fyrra. Það sem af er ári hafa selst 1097 nýir fólksbílar til almennra fyrirtækja en í fyrra á sama tíma voru þeir 1027 og aukning milli ára því 6,8%.

Sala til ökutækjaleiga heldur áfram að aukast sé horft til síðastliðins árs og seldust 1095 nýir fólksbílar til þeirra samanborið við 723 á sama tíma í fyrra. Það er aukning upp á 51,5 % miðað við júlí 2020. Það sem af er ári hafa verið skráðir 3386 nýir fólksbílar í ökutækjaleigu samanborið við 1585 bíla í fyrra og er því aukning í sölu fólksbíla til ökutækjaleiga tæplega 114%.

Toyota var mest selda tegundin í júlí með 360 selda fólksbíla. Þar á eftir kemur Kia með 331 seldan bíl og þriðja mest selda merkið var Hyundai með 193 fólksbíla skráða.   

 

mbl.is