Veisla fyrir Range Rover-aðdáendur

Nýr og glæsilegur Range Rover Sport verður fáanlegur frá kr. …
Nýr og glæsilegur Range Rover Sport verður fáanlegur frá kr. 17.490.000.

Það verður mikið um dýrðir á laugardaginn næsta, 8. október, þegar Jaguar Land Rover við Hestháls frumsýnir nýjar kynslóðir tveggja bíla frá Land Rover í Bretlandi.

Um er að ræða Range Rover Sport (L461) og Ranger Rover (L460), en framleiðandinn frumsýndi þann fyrr nefnda á heimsvísu með eftirminnilegu myndbandi við Kárahnjúka fyrr á árinu, sem streymt var á netinu. Þar var tekist á við akstur í Hafrahvammagljúfri í kapphlaupi við tímann áður en vatnsborð Hálslóns færi á yfirfall með beljandi fljótinu sem þá yfirtekur gljúfrið með 750 tonna vatnsmagni á mínútu, að því er fram kemur í tilkynningu. 

Glæsilegur Range Rover Sport

Í tilkynningu kemur fram að nokkrar mismunandi útfærslur Range Rover Sport verði í boði hjá Jaguar Land Rover á Íslandi en höfuðáherslan verður lögð á tengiltvinnbílinn (PHEV) með sex strokka bensínvél og forþjöppu auk rafmótors og eru gerðirnar annars vegar 440 hestöfl og hins vegar 510 hestöfl sem skila hröðun frá 5,4 sekúndum í 5,8 sekúndur í 100 km/klst.

Rafhlaðan í tengiltvinnbílnum er ein sú stærsta sem boðin er í nokkrum bíl í dag eða 38 kWh og er uppgefin drægni 113 kílómetrar samkvæmt WLTP. Allar gerðir Range Rover Sport eru að sjálfsögðu búnar allri nýjustu þæginda- og driftækni Land Rover ásamt einstökum þægindabúnaði í farþegarýminu sem gestum frumsýningarinnar gefst kostur á að kynna sér nánar á sýningunni. Verð Range Rover Sport er frá kr. 17.490.000.

Range Rover verður fáanlegur frá kr. 21.890.000.
Range Rover verður fáanlegur frá kr. 21.890.000.

Sígildur Range Rover í möttum lit

Í tilfelli flaggskipsins Ranger Rover verður lögð áhersla á kynningu á fyrstu útgáfu bílsins (First Edition) sem kemur í sérstöku möttum kynningarlit. Þessi nýjasta kynslóð Range Rover er ný frá grunni, svo miklar eru breytingarnar þótt engum dyljist að öll megineinkenni flaggskipsins séu enn á sínum stað.

Í tilkynningu er rakið að meðal nýjunga, fyrir utan breytt útlit, megi nefna óvenjulítinn beygjuradíus miðað við lengd, eða aðeins 10,9 m enda beygi bíllinn á öllum fjórum hjólum. Auk þess er Range Rover nú í fyrsta sinn fáanlegur 7 manna í lengri útgáfunni. Range Rover er, eins og í tilfelli Range Rover Sport, boðinn í mismunandi vélaútgáfum, bæði sex strokka dísilvélum, sem gefa allt að 350 hestöfl, og einni átta strokka 530 hestafla bensínvél. Á næsta ári kemur bíllinn svo í tengiltvinnútgáfu, annars vegar 440 hestöfl og hins vegar 510 hestöfl. Verð Range Rover er frá kr. 21.890.000.

mbl.is