Nýr Lexus frumsýndur á laugardag

Lexus RZ 450e.
Lexus RZ 450e. Ljósmynd/Aðsend

Á laugardaginn, 20. maí, frá 12 til 16 verður nýr rafmagnsbíll, Lexus RZ 450e, frumsýndur í Lexussalnum í Kauptúni, Garðabæ.

RZ 450e er með 71,4 kWh rafhlöðu sem er ætlað að halda 90% afköstum eftir 10 ára notkun. Áætluð eyðsla í 100 km akstri samkvæmt WLTP staðlinum er 16,8 – 18,7 kWh.

Ljósmynd/Aðsend

„Lexus RZ 450e býður upp á frábæra akstursupplifun og vel er hugsað fyrir þægindum og öryggi fyrir bæði ökumann og farþega. RZ 450e bætir enn í úrval rafmagns- og tengiltvinnbíla sem Lexus hefur á boðstólum en fyrir eru rafmagnsbíllinn UX 300e og tengiltvinnbílarnir NX 450h+ og RX 450h+,“ segir í tilkynningu.

Áskrifendur Morgunblaðsins geta lesið bíladóm blaðamanns á Lexus RZ 450e sem birtist í bílablaðinu 21. mars hér.

mbl.is