Frumsýna nýjan EQE SUV

EQE SUV er stór og stæðilegur lúxusjeppi með miklu plássi …
EQE SUV er stór og stæðilegur lúxusjeppi með miklu plássi fyrir fólk og farangur. Ljósmynd/Aðsend

Nýr EQE SUV frá Mercedes EQ verður frumsýndur hjá Bílaumboðinu Öskju dagana 8.-10. júní, að því er fram kemur í tilkynningu frá bílaumboðinu Öskju.

EQE SUV er stór og stæðilegur lúxusjeppi með miklu plássi fyrir fólk og farangur. Farangursrými bílsins er allt að 1686 lítrar. Með allt að 552 km drægni, framúrskarandi hönnun og einstakri akstursupplifun nær EQE SUV nýjum hæðum í flokki rafmagnaðra lúxusjeppa, eins og fram kemur í tilkynningunni.

Bíllinn er byggður á sameiginlegum EVA 2.0 undirvagni sem einnig má finna í EQS og EQE fólksbílunum og eru tveir öflugir rafmótorar og fjölhæft fjórhjóladrif grundvöllur framúrskarandi akstursupplifunar bílsins.

Auk EQE SUV verður einnig magnaður Mercedes-AMG EQE 43 SUV …
Auk EQE SUV verður einnig magnaður Mercedes-AMG EQE 43 SUV frumsýndur á sama tíma í glæsilegum sýningarsal Mercedes-Benz á Íslandi. Ljósmynd/Aðsend

Mercedes-AMG EQE 43 SUV einnig frumsýndur

Skýrar línur gefa bílnum nýstárlega straumlínulögun og sportlegt yfirbragð, ásamt skarpri ásýnd og samfelldu heildarútliti. MBUX ofurskjárinn og stafrænir litaheimar setja tóninn í innra rýminu, ásamt hágæðaskreytingum og ríkulegu plássi. Akstursstoðkerfi, leiðsögukerfi með snjallvirkni og framúrskarandi hljómgæði gera ökumanni og farþegum kleift að njóta sín á löngu ferðalagi sem verður einstaklega þægilegt og afslappandi, að því er fram kemur í tilkynningunni.

Auk EQE SUV verður einnig magnaður Mercedes-AMG EQE 43 SUV frumsýndur á sama tíma í glæsilegum sýningarsal Mercedes-Benz á Íslandi.

mbl.is