Sonur Pippu kominn með nafn

Pippa og James Matthews eru búin að nefna son sinn.
Pippa og James Matthews eru búin að nefna son sinn. AFP

Pippa og James Matthews eru búin að nefna son sinn sem kom í heiminn 15. október. Samkvæmt Daily Mail heitir systursonur Katrínar hertogaynju Arthur Michael William Matthews.

Nöfnin eru ekki alveg út í bláinn og er Michael-nafnið þýðingarmikið fyrir föðurinn. Bróðir James Matthews hét Michael Matthews en hann lést árið 1999 þegar hann var að klífa Everest aðeins 22 ára gamall. Faðir Pippu heitir einnig Michael. 

Ekki er vitað hvort litli drengurinn sé nefndur í höfuðið á frænda sínum Lúðvík prinsi en Lúðvík heitir einmitt Lúðvík Arth­úr Karl. Þeir Vilhjálmur og Karl Bretaprins bera einnig millinafnið Arthúr. 

Pippa Matthews.
Pippa Matthews. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert