Gerði þeyting úr fylgjunni

Hillary Duff ásamt kærasta sínum Matthew Koma kynnti Banks Violet …
Hillary Duff ásamt kærasta sínum Matthew Koma kynnti Banks Violet fyrir umheiminum nýverið. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Barnastjarnan fyrrverandi og leikkonan Hilary Duff eignaðist sitt annað barn á dögunum. Eins og svo margir ákvað hún að borða fylgjuna og til þess að gera hana lystugri setti hún hana í blandarann.

Samkvæmt E! greindi Duff frá þessu í hlaðvarpsþætti á dögunum. Í þættinum útskýrði hún að hún hefði sett ber og ávaxtasafa í blandarann til þess að gera fylgjuþeytinginn girnilegri. 

„Þetta var ánægjulegasti þeytingurinn sem ég hef nokkurn tímann fengið,“ sagði Duff. „Ég hef ekki fengið jafnánægjulegan þeyting síðan ég var tíu ára.“ 

Á meðan það er vinsælt að láta búa til töflur úr fylgjunni sem er sögð full af næringarefnum lét Duff það vera. Hafði hún heyrt eitthvað skrítið um fylgjur í töfluformi. Hún geymir fylgjuna í klakaformi í frystinum svo auðvelt er að nota hana í þeytinga og á hún nóg eftir. 

View this post on Instagram

Not a care in the world 🦄

A post shared by Hilary Duff (@hilaryduff) on Nov 7, 2018 at 8:33am PST

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert