Ertu með fullt hús af börnum?

Með fullt hús af börnum getur heimilið stundum orðið undirlagt …
Með fullt hús af börnum getur heimilið stundum orðið undirlagt af dóti. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Ef þú ert foreldri og ert ekki að fylgja Chloe Thurston á Instagram þá ættir þú að gera það núna. Thurston vann í tæknigeiranum þangað til hún eignaðist fullt af börnum. Þá ákvað hún að setja fókusinn á innanhússhönnun og setja alla athyglina á að búa til skemmtilegt umhverfi fyrir alla í fjölskyldunni. 

Thurston mælir með hvítum húsgögnum á heimili með fullt af börnum. Hún er hrifin af fallegri hönnun og fullt af dóti, en velur að setja flest dótið í góðar hirslur og lætur einungis gæða hönnunarvörur vera sýnilegar.

Myndirnar hennar sýna hversu vel er hægt að útfæra barnaherbergi. Stundum fara þau á hvolf, en það tekur ekki langan tíma að setja allt á sinn stað, þegar nóg er til af pökkum og boxum sem eru í fallegum stíl við barnaherbergin.

Ef þú ert með fullt hús af börnum og lítið geymslupláss getur Thurston komið með hugmyndir að góðu fyrirkomulagi. Þessi fimm barna móðir gerir lífið og tilveruna léttari. Einnig er hægt að lesa bloggið hennar hér. 

View this post on Instagram

Where’s the baby?? 👶🏼

A post shared by Chloe (@chloeuberkid) on Oct 30, 2018 at 1:03pm PDT





mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert