„Það hlaut að koma að því“

Viktoría Hermannsdóttir og Sóli Hólm eignuðust dóttur.
Viktoría Hermannsdóttir og Sóli Hólm eignuðust dóttur.

Skemmtikrafturinn Sóli Hólm og fjölmiðlakonan Viktoría Hermannsdóttir eignuðust dóttur aðfaranótt 29. mars.

„Það hlaut að koma að því! Þessi stúlka kom í heiminn klukkan 4:11 aðfaranótt 29. mars, tæplega 16 merkur og 51cm.

Það var eins og hún væri með samviskubit yfir því að hafa látið móður sína ganga svona langt fram yfir settan dag og vildi bæta henni það upp með því að mæta á svæðið aðeins klukkutíma eftir að við komum upp á fæðingadeild. Allt gekk vel og mæðgunum heilsast vel. Okkur finnst hún auðvitað fullkomin og stóru systkinin hennar eru ekki minna ánægð með hana,“ segir Sóli Hólm á facebook-síðu sinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert