Gemma Whelan styður mjólkandi mæður

Konur eru að sjálfsögðu miklar ofur-hetjur að geta nært börn …
Konur eru að sjálfsögðu miklar ofur-hetjur að geta nært börn sín á brjósti. Gemma Wheland sýnir það í verki.

Ef einhver hefði talið að tími ofurhetja sé á enda, ætti sá hinn sami að hugsa sig um tvisvar. Á Instagram þessa dagana birtast myndir reglulega undir myllumerkinu #brelfies þar sem mjólkandi mæður standa saman um að sýna hversu töff það er að hafa barn á brjósti. Nýleg mynd birtist af Game of Thrones-stjörnunni Gemma Whelan að gefa barni sínu á brjóst á milli atriða. 

Ein af grunnþörfum hvers nýfædds barns er að fá að nærast af brjósti móður sinnar þegar það er svangt. Margar mæður þekkja að þurfa að gefa barni sínu af brjósti á ólíklegustu stöðum. Það er aldrei þægilegt fyrir konu að vera staðsetta mitt á meðal fólks, þegar þörf barnsins vaknar.

Brjóstamyndir undir myllumerkinu #brelfies sýnir samstöðu þeirra kvenna sem vilja taka skömmina af konum í þessum aðstæðum. 






mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert