Frá því að grínleikkonan Amy Schumer tilkynnti um óléttu sína hefur hún verið að bera sig saman við Meghan hertogaynju. Þær áttu báðar von sér um svipað leyti og börnin komu í heiminn á sama sólahringnum. Á mánudagsmorgun kom sonur Harry og Meghan í heiminn í Bretlandi en kvöldið áður kom sonur Amy Schumer og Chris Ficher í heiminn í Bandaríkjunum.
„22:55 í gærkvöldi. Konunglega barnið okkar kom í heiminn,“ skrifaði Schumer á Instagram á mánudagskvöldið og birti mynd af fjölskyldunni.
View this post on Instagram10:55 pm last night. Our royal baby was born.
A post shared by @ amyschumer on May 6, 2019 at 1:26pm PDT
Schumer birti mynd af sér á leiðinni á spítalann í gær þegar aðrar stjörnur létu mynda sig á tröppum Metropolitan-safnsins á Met Gala. „Met-útlitið í ár. Í gærkvöldi á leiðinni á spítalann,“ skrifaði Schumer á mánudaginn á Instagram.
View this post on InstagramMet look this year. Last night on the way to the hospital 👠
A post shared by @ amyschumer on May 6, 2019 at 1:16pm PDT