Margrét Erla Maack á von á dóttur

Margrét Erla Maack birti tvær bumbumyndir af sér á Instagram.
Margrét Erla Maack birti tvær bumbumyndir af sér á Instagram. skjáskot/Instagram

Fjöllistakonan Margrét Erla Maack á von á dóttur með Tómasi Steindórssyni. Margrét Erla greinir frá komu erfingjans á Instagram í dag og birti um leið tvær bumbumyndir. Segir hún þau vera ótrúlega ánægð og óléttan hafi verið yndisleg. 

Margrét Erla segir að hún hafi verið vöruð við því að greina frá óléttunni á samfélagsmiðlum þar sem að síminn myndi hætta að hringja hjá henni í kjölfarið. Nú er hún hins vegar búin að bóka sig þangað til hún verður að hætta að vinna og ákvað því að greina frá óléttunni auk þess sem bumban sé nú orðin vel sýnileg. 

Þó svo að litla daman sé enn í maganum á móður sinni hefur komið víða við og meðal annars komið fram í New York, Washington, Reykjavík, London, Tallinn, Berlín og Kaupmannahöfn og er á leið til Brighton. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert