Fengu sér húðflúr með nafni dótturinnar

Travis Scott og Kylie Jenner eiga dótturina Stormi sem varð …
Travis Scott og Kylie Jenner eiga dótturina Stormi sem varð eins árs í byrjun febrúar. AFP

Stjörnuparið Kylie Jenner og Travis Scott fengu sér eins húðflúr með nafni dóttur sinnar, Stormi, í afmæli Scott í síðasta mánuði. 

Parið sýndi frá því að þau væru að fá sér húðflúr og mátti sjá Jenner brúka húðflúrsbyssuna á barnsföður sinn. Þau sýndu þó ekki myndir af lokaafurðinni eftir á. Um helgina birti hins vegar húðflúrarinn myndir af húðflúrum þeirra Jenner og Scott. 

Foreldrarnir eru ekki þau einu sem eru með nafn Stormi húðflúrað á líkama sinn en ein besta vinkona Jenner, Anastasia Karanikolaou, fékk sér einnig húðflúr með nafninu. 

Húðflúrin sem Travis Scott og Kylie Jenner fengu sér.
Húðflúrin sem Travis Scott og Kylie Jenner fengu sér. Samsett mynd
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert