Engir símar við borðið hjá Kramer

Jana Kramer er vinsæl kántrí-söngkona í Bandaríkjunum.
Jana Kramer er vinsæl kántrí-söngkona í Bandaríkjunum. AFP

Á heimili leik- og söngkonunnar Jönu Kramer er ein regla heilög; engir símar við kvöldmatarborðið. Kramer segist vilja nýta þá stund til að tala við fjölskylduna sína án truflana. Kramer er gift fyrrverandi fótboltakappanum Mike Caussin og saman eiga þau tvö börn, hina þriggja ára gömlu Jolie og sex mánaða gamla Jace.

Kramer er önnum kafin við kantrí-söngferil sinn og stjórnar einnig hlaðvarpsþáttunum Whine Down. Þótt hún sé upptekin vill hún eyða sem mestum tíma með fjölskyldunni og svarar ekki í símann á kvöldin nema í neyðartilvikum. 

Kramer er einna helst þekkt fyrir hlutverk sitt í unglingaþáttunum One Tree Hill sem sýndir voru á árunum 2003-2012. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert