Söng- og leikkonan Ágústa Eva Erlendsdóttir er hæfileikarík kona sem leyfir listrænum hæfileikum að njóta sín þegar hún heldur barnaafmæli.
Sonur hennar varð nýverið átta ára gamall og voru alls konar réttir í boði fyrir börnin m.a. hollusta á borð við grænmeti sem börnin gátu gætt sér á. Veisluborðið var skreytt í öllum regnbogans litum.
Í viðtali við Smartland í fyrra ræddi Ágústa Eva um hlutverk sitt sem móðir.
„Börnin eru eins og hugur manns sem er eitthvað sem ég bjóst ekki við. Samt sem áður er þetta mest krefjandi verkefni sem ég hef fengist við, það að vera tveggja barna móðir.“
Það ríkir mikil systkinaást á milli barnanna. „Það að verða vitni að því fær mann til að kikna í hnjánum,“ segir hún.