Börnin hvetja hana til gera betur

ANAHEIM, CALIFORNIA - AUGUST 23:Christina Aguilera attends D23 Disney Legends …
ANAHEIM, CALIFORNIA - AUGUST 23:Christina Aguilera attends D23 Disney Legends event at Anaheim Convention Center on August 23, 2019 in Anaheim, California. Frazer Harrison/Getty Images/AFP == FOR NEWSPAPERS, INTERNET, TELCOS & TELEVISION USE ONLY == AFP

Tónlistarkonan Christina Aguilera segir að börnin hennar séu henni hvatning til að verða betri. Aguilera á tvö börn, Max 11 ára sem hún á með fyrri eiginmanni sínum Jordan Bratman og Summer, fimm ára, sem hún á með unnusta sínum Matthew Rutler. 

„Ég er barn í hjarta og þau gefa mér tækifæri til að leika mér og virkja ímyndunaraflið,“ sagði Aguilera í viðtali við Haute Living. „Maður er hluti af lífi þessara ótrúlegu litlu mannvera og það kennir manni þolinmæði og ýmislegt um mann sjálfan sem maður er ekki hrifinn af og þarf að vinna í. Þetta er endalaus lærdómur. Þau kenna mér svo mikið og hvetja mig til þess að gera betur,“ sagði Aguilera.

Hún sagðist þó ekki ætla að eignast fleiri börn. „Það sem alheimurinn vill að gerist gerist. Hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér? En eins og staðan er núna ætla ég ekki að eignast fleiri börn,“ sagði Aguilera.

Aguilera sagði einnig að hún hefði börnin sín í forgangi og það hefði haft áhrif á vinnu hennar. Hún ákvað að hætta að fara í stór tónleikaferðalög og tók tilboði um að vera dómari í The Voice því hún vissi að þá gæti hún unnið í Los Angeles.

„Flestar ákvarðanir sem ég tek eru undir áhrifum frá börnunum mínum en á sama tíma verð ég að passa mig að týna sjálfri mér ekki og muna hvað skiptir mig máli. Það er hluti af fordæminu sem ég vil setja börnunum mínum: fylgdu hjartanu og týndu sjálfri þér ekki þegar lífið breytist,“ sagði Aguilera.

Christina segir að börnin hennar séu henni hvatning til að …
Christina segir að börnin hennar séu henni hvatning til að gera betur. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert