Vill enga hjálp með börnin

Kanye West og Kim Kardashian eiga fjögur ung börn.
Kanye West og Kim Kardashian eiga fjögur ung börn. mbl.is/AFP

Kim Kardashian og Kanye West eiga fjögur ung börn saman. Það er mikið að gera á stóru heimili en Kardashian segir West vera á tímabili þar sem hann neitar að vera með aðstoðarfólk. Kardashian tjáði sig um fjölskyldulífið í spjallþættinum The View á dögunum. 

Kardashian byrjaði á því að taka fram að fjögur börn væru meira en nóg og hún ætlaði ekki að bæta fleiri við. Sagðist hún ekki geta lýst því hvernig það væri að gera alla klára á morgnana. 

Raunveruleikastjarnan var þá spurð hvort hún væri ekki með einhverja hjálp. Jú, Kardashian sagðist vera með hjálp og væri þakklát fyrir fólkið sem hjálpaði henni. Eiginmaður hennar er hins vegar á tímabili þar sem hann vill enga hjálp. 

„Allt í lagi, þú reynir þá við morgnana,“ sagðist Kardashian hafa sagt við West sem er aðeins byrjaður að átta sig. Fyrir utan uppreisn West þá segir stjarnan að börnin vilji bara mömmu sína og pabba en ekki barnfóstrur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert