Fitnessdrottning á von á barni

Alexandra Sif á von á barni.
Alexandra Sif á von á barni. mbl.is/Golli

Hreysti­drottn­ing­in og áhrifavaldurinn Al­ex­andra Sif Nikulás­dótt­ir á von á sínu fyrsta barni með sambýlismanni sínum, Arnari Frey Bóassyni. Eiga þau von á barninu í júní. 

Alexandra tilkynnti óléttuna á nýársnótt. 

„Gleðilegt nýtt ár,“ skrifaði Alexandra. „Frá okkur tveim og bráðum litlu apaskotti.“

Alexandra Sif hefur lengi verið vinsæl á samfélagsmiðlum og var meðal annars sögð tekjuhæsti snapparinn í tekjublaði DV árið 2017. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert