Fjölmiðlamaðurinn Þorbjörn Þórðarson og Ása Dagmar Jónsdóttir eignuðust sitt fyrsta barn nú í vikunni.
Þorbjörn greinir frá fæðingu sonarins í færslu á Facebook þar sem hann greinir einnig frá því að þau hafi gefið honum nafnið Tómas. Þorbjörn bætir við að öllum heilsist vel.
Barnavefur mbl.is óskar þeim innilega til hamingju!