Vill ekki láta kalla sig stjúpmömmu

Tom Brady and Gisele Bündchen eiga þrjú börn samtals.
Tom Brady and Gisele Bündchen eiga þrjú börn samtals. AFP

Ofurfyrirsætan Gisele Bündchen á tvö börn með eiginmanni sínum, ruðningskappanum Tom Brady. Þar að auki á Brady eitt barn. Bündchen svaraði spurningum aðdáanda á Instagram og greindi frá því að hún væri ekki hrifin af orðinu stjúpmamma. 

Bündchen greindi frá þessu þegar hún var spurð út í það hvernig það væri að vera stjúpmamma. 

„Ég kann ekki við orðið „stjúpmamma“,“ sagði ofurfyrirsætan. „Mér finnst orðið „bónusmamma“ betra af því mér finnst þetta vera mikil blessun. Mér finnst ég vera heppin að hafa auka yndislegan lítinn engil í lífi mínu.“

Bündchen er ein vinsælasta fyrirsæta í heimi og eiginmaður hennar einn vinsælasti íþróttamaður í Bandaríkjunum. Það er mikið að gera á heimilinu en hún segist ekki vera með áhyggjur yfir tímaleysi. 

„Ég held að við reynum bara að gera okkar besta að vera til staðar fyrir börnin þegar við erum með þeim,“ sagði Bündchen. „Ég held að þetta snúist ekki um tímafjölda. Mér finnst þetta snúast meira um gæði tímans.“

View this post on Instagram

Happy Father’s Day my love. There’s no words to describe how much you mean to us. There’s nothing that we love more than being with you! Besides being the best tickler, pancake maker and hair cuter in the world you are the best dad ! Thank you for always making us feel safe and for loving us the way that you do. We love you so much!❤️❤️❤️❤️ Feliz Dia dos Pais, meu amor. Não há palavras para descrever o quanto você significa para nós. Não há nada que amamos mais do que estar com você! Além de fazer as melhores cócegas, panquecas, e cortes de cabelo, você também é o melhor pai! Obrigada por sempre nos fazer sentir seguros e por nos amar. Nós te amamos muito!

A post shared by Gisele Bündchen (@gisele) on Jun 16, 2019 at 10:02am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert