Aron Einar Gunnarsson fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta og Kristbjörg Jónasdóttir einkaþjálfari eiga von á sínu þriðja barni. Heimilisfaðirinn greindi frá þessu á Instagram rétt í þessu.
Hjónin eru búsett í Katar þar sem hann spilar með Al-Arabi en áður bjuggu þau í Bretlandi. Fyrir eiga hjónin tvo syni og segjast þau mjög spennt fyrir því að verða fimm manna fjölskylda.
Barnavefurinn óskar þeim hjartanlega til hamingju með fjölgunina og óskar þeim góðs gengis.
View this post on InstagramA post shared by Aron Gunnarsson (@arongunnarsson) on Apr 28, 2020 at 4:07am PDT