Wiig og Rothman eignuðust óvænt tvíbura

Kristen Wiig er orðin móðir.
Kristen Wiig er orðin móðir. AFP

Leikaraparið Kristen Wiig og Avi Rothman eignuðust tvíbura fyrr á þessu ári. Þetta eru fyrstu börn þeirra Wiig og Rothman saman en þau notuðust við staðgöngumóður. 

Wiig og Rothman hafa ekki tilkynnt um fæðingu tvíburanna sjálf en heimildarmaður People staðfestir að þau séu nú orðin foreldrar. 

Parið hefur verið saman síðan árið 2016 en farið leynt með samband sitt. Þau trúlofuðu sig í ágúst síðastliðinn. 

Wiig gaf óljóst til kynna að hún væri að verða móðir þegar hún kom fram í Saturday Night Live á mæðradaginn, 10. maí síðastliðinn. Þar fór hún fallegum orðum um móður sína, Laurie Johnson, og þakkaði henni fyrir að undirbúa hana fyrir að verða móðir. 

„Ég veit ekki hvort ég hafi raunverulega kunnað að meta móður mína fyrst 45 árin af lífi mínu. En í ár kann ég virkilega að meta hana og þakklát fyrir ráð hennar og ást. Ég er svo þakklát fyrir allt sem hún hefur kennt mér, eins og að undirbúa mig fyrir að verða móðir,“ sagði Wiig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert