Þjálfarinn Emily Skye fæddi son sinn óvænt heima í stofu í gær fimmtudag. Litli drengurinn, sem fengið hefur nafnið Izaac, kom þremur vikum fyrir settan dag og kom öllum á óvart.
„Jæja, þetta var óvænt,“ skrifaði Skye í Instagram færslu sína í gær til að tilkynna um fæðingu sonar síns. Meðfylgjandi var mynd af henni á stofugólfinu heima hjá sér með Izaac litla í fanginu.
Fyrr þennan sama dag deildi Skye myndbandi af sér og skrifaði að hún ætti eftir að gera fullt af hlutum áður en sonur hennar kæmi í heiminn. En sonurinn, þá ófæddur, lét skilaboð móður sinnar sem vind sem eyru þjóta og dreif sig í heiminn öllum að óvörum.
Skye deildi ekki allri fæðingarsögunni á Instagram í gær en lofaði fylgjendum sínum að deila henni seinna.
View this post on InstagramA post shared by ᗴᗰIᒪY ᔕKYᗴ | 𝘍𝘪𝘵𝗇𝖾𝗌𝗌 + 𝖧𝖾𝖺𝗅𝗍𝗁 (@emilyskyefit) on Jun 18, 2020 at 4:33am PDT
View this post on InstagramA post shared by ᗴᗰIᒪY ᔕKYᗴ | 𝘍𝘪𝘵𝗇𝖾𝗌𝗌 + 𝖧𝖾𝖺𝗅𝗍𝗁 (@emilyskyefit) on Jun 17, 2020 at 3:14am PDT