Lúðvík prins elskar bökunarþætti Mary Berry

Lúðvík prins er hrifinn af matreiðslubókum og þáttum Mary Berry.
Lúðvík prins er hrifinn af matreiðslubókum og þáttum Mary Berry. AFP

Lúðvík litli Bretaprins er einstaklega hrifinn af bökunarþáttum í sjónvarpinu. Hann vill þó ekki hvað sem er en uppáhalds þættir hans eru bökunarþættir sjónvarpskokksins Mary Berry. 

Heimildarmaður náinn fjölskyldunni sagði að Lúðvík klappi og hrópi þegar hann sjái Berry í sjónvarpinu, föður hans til mikillar ánægju. 

Móðir hans, Katrín hertogaynja, hefur áður sagt frá því að eitt fyrsta orðið sem Lúðvík sagði var nafn kokksins, Mary. Hún sagðist þá ekki vera hissa á því þar sem margar matreiðslubækur frá Berry má finna á heimili þeirra. 

„Lúðvík veit ekkert betra en að kíkja í matreiðslubækur Mary berry. Hann elskar myndirnar, bendir á allt sem hann langar á, súkkulaðikaka, plómupæ og ávaxtaskonsur virðast vera í uppáhaldi,“ sagði heimildarmaðurinn við The Sun. 

Mary Berry er góð vinkona Vilhjálms Bretaprins og Katrínar hertogaynju en þau tóku þátt í sérstökum þætti hjá henni fyrir jólin. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert