Dagur B. dansar fyrir Duchenne

Dagur dansaði fyrir Duchenne.
Dagur dansaði fyrir Duchenne. Samsett mynd

Dagur B. Eggertsson sýndi snilldarlega takta í morgun þegar hann dansaði með Huldu Björk Svansdóttir og syni hennar Ægi Þór sem er með Duchenne-vöðvarýrnunarsjúkdóminn. 

„Frábært vídeó í dag þar sem við vorum svo heppin að fá sjálfan Borgarstjóra Reykjavíkur, Dag B. Eggertsson að dansa með okkur. Ég er honum afar þakklát að hafa troðið okkur inn í þétta dagskrá sína. Það sýnir manni enn og aftur að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Hann stóð sig líka frábærlega og það var geggjað að dansa með honum,“ segir Hulda.

Föstudagsdansinn er fastur liður á YouTube-rás Huldu en á rásinni fjallar hún um sjúkdóm Ægis Þórs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert