17 mánaða tískufyrirmynd

Hér er hin 17 mánaða í bol frá Balanciaga og …
Hér er hin 17 mánaða í bol frá Balanciaga og með belti frá Gucci. Skjáskot/Instagram

Azalea Elezaj er vinsæll áhrifavaldur með fjölda fylgjenda á Instagram. Azalea klæðist rándýrum hönnunarvörum sem margar konur væru til í að eiga. Það óvenjulega við Azaleu er að hún er aðeins 17 mánaða.

Móðir Azaleu, hin 26 ára gamla Suela Gilaj, býr með barnsföður sínum í London. Hún bjó til instagramsíðu fyrir dóttur sína þegar hún fékk áhuga á því að klæða hana í föt sem pössuðu við hönnunarfötin sem hún sjálf klæðist að því er fram kemur á vef The Sun. Móðirin er sögð hafa eytt yfir 5.330 pundum í fataskáp Azaleu litlu eða hátt í milljón íslenskra króna. Krúttlegi áhrifavaldurinn á vörur frá tískumerkjum á borð við Gucci, Versace, Burberry og Givenchy. 

Ekki eru þó allir hrifnir af uppátæki móðurinnar þótt Azalea litla sé án vafa mjög krúttleg á myndunum á Instagram. Móðir hennar er meðal annars sökuð um að nota dóttur sína til þess að verða fræg. 

„Ég reyni að klæða Azaleu eins og ég klæði mig, reyni að gera hana að lítilli útgáfu af mér,“ segir móðirin, Suela Gilaj. „Hún er mjög brosmilt og hamingjusamt barn og elskar að sitja fyrir í myndatökum en hún er þó ekki alltaf í skapinu til þess.“

Móðirin er reyndar hrædd um að Azalea litla verði ekki ánægð með myndirnar þegar hún eldist. Hún segist þó vona að dóttir sín þakki sér. Hún sé aðeins að reyna að gera sitt besta. 

„Ég fæ athugasemdir frá fólki sem segir mér að klæða hana ekki eins og ég geri en hún er barnið mitt og ég ákveð hvað er best fyrir hana,“ segir Gilaj sem segist eyða neikvæðum athugasemdum. 

„Fólk heldur að hún lifi ekki venjulegu barnalífi en hún gerir það, ég bara sýni það ekki á Instagram. Hún er mjög glöð, alltaf að leika sér og skemmta sér.“






mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert