Segist ekki eiga von á barni

Khloé Kardashian klæddi sig upp með fjölskkyldu sinni á hrekkjavökunni.
Khloé Kardashian klæddi sig upp með fjölskkyldu sinni á hrekkjavökunni. Skjáskot/Instagram

Raunveruleikaþáttastjarnan Khloé Kardashian virðist vera byrjuð aftur með barnsföður sínum, körfuboltakappanum Tritstan Thompson. Nú bíða aðdáendur hennar eftir því að hún tilkynni að dóttir þeirra True eigi von á litlu systkini. 

Þrátt fyrir sífelldan orðróm neitaði Kardashian þegar aðdáandi hennar skrifaði athugasemd við myndir af fjölskyldunni sem Kardashian birti á samfélagsmiðlum. Myndirnar voru frá hrekkjavökunni og var Kardashian í búningi Kleópötru en Thompson klæddur sem Mark Anthony. 

„Enn sannfærð um að Khloé Kardashian segi okkur eftir tvo mánuði að hún sé ólétt,“ skrifaði twitternotandi. 

Kardashian svaraði konunni. 

„Magavöðvarnir mínir sýna allt annað, elskan,“ svaraði Kardashian sem er greinilega með munninn fyrir neðan nefið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka