Tilnefnd til Grammy-verðlauna átta ára

Blue Ivy Carter verður 9 ára í janúar.
Blue Ivy Carter verður 9 ára í janúar. skjáskot/Youtube

Hin átta ára gamla Blue Ivy Carter hefur verið tilnefnd til Grammy-verðlauna fyrir lag sitt Brown Skin Girl. Hún er elsta dóttir stjörnuparsins Beyoncé Knowles og Jay-Z og á því ekki langt að sækja hæfileikana. 

Blue Ivy verður níu ára í janúar næstkomandi en verðlaunahátíðin fer fram 31. janúar 2021. Hún er meðal þeirra yngstu sem hafa verið tilnefnd til verðlaunanna. Lagið Brown Skin Girl er tilfnefnt í flokki bestu tónlistarmyndbanda. 

Í júní vann Blue Ivy til BET-verðlauna fyrir sama lag. 

Nóg hefur verið að gera hjá Blue Ivy þessa dagana en nýlega kom út hljóðbarnabókin Hair Love sem hún las upp. Bókin fjallar um svartan föður sem er að læra að hugsa um hár dóttur sinnar. Stuttmynd byggð á bókinni vann Óskarsverðlaunin fyrr á þessu ári. 

CNN

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert