Selur kjólana sem Kardashian-systur elska

Edda Ólafsdóttir með dætrum sínum tveimur.
Edda Ólafsdóttir með dætrum sínum tveimur.

Edda Ólafsdótti, eigandi vefverslunarinnar Nadíu & Söru, er mikið jólabarn enda á hún afmæli á jólunum. Hún segir öll börn kunna vel við sig í vönduðum og þægilegum fötum og mælir með að klæða fjölskylduna í stíl fyrir jólin. 

Edda Ólafsdóttir elskar að skreyta í kringum sig. Hún býr í Leirvogstungu í Mosfellsbæ ásamt eiginmanni sínum Rúnari Helgasyni og tveimur dætrum þeirra; Nadíu Rós níu ára og Söru Dís þriggja ára.

Edda er mjög jákvæð að eðlisfari og vill hafa nóg á sinni könnu.

„Verslunin stækkar hratt og það er alltaf nóg að gera hjá mér. Það getur verið krefjandi að reka fyrirtæki með ung börn á heimilinu en á sama tíma mjög skemmtilegt. Þessi tími árs er hvað annasamastur, nýjar vörur streyma inn í búðina og jólaandinn er kominn yfir mann. Þetta er bara svo yndislegur tími. Mér finnst dásamlegt að lýsa skammdegið upp með fallegum ljósum og hlusta á jólalögin. Því fyrr því betra segi ég.“

Heimili fjölskyldunnar er glæsilegt og það sama má segja um …
Heimili fjölskyldunnar er glæsilegt og það sama má segja um skrautið sem smart.

Gæði og tímalaus hönnun skipta máli

Hvað getur þú sagt mér um fallegan klæðnað á börnin fyrir jólin?

„Þegar ég vel föt á stelpurnar mínar finnst mér gæði og tímalaus hönnun skipta miklu máli. Ég reyni að velja fatnað sem hægt er að nota við önnur tilefni líka. Ég elska tjull, blúndur, velúr og allir litir koma til greina. Það er bara svo gaman að klæða börnin upp á í hátíðleg og falleg föt.“

Af hverju ættu allir að fjárfesta í fallegum fatnaði fyrir sig um jólin?

„Á jólunum er tilvalið að njóta þess að klæða sig upp á og skarta sínu fegursta. Held að við höfum öll gott af því og þá sérstaklega núna á þessum skrítnu kórónuveirutímum. Það hafa ekki verið mörg tilefni á árinu til þess að klæða sig upp á og ég kann alveg að meta kósígallann en mér finnst alveg ofboðslega skemmtilegt að vera fín. Mér finnst um að gera að klæða fjölskylduna í stíl og taka fallegar myndir. Skapa minningar og njóta samverunnar.“

Edda á afmæli nokkrum dögum fyrir jólin og á margar góðar minningar af sér sem barni á þessum tíma.

„Mamma og pabbi pössuðu alltaf rosalega vel upp á að halda upp á daginn fyrir mig þrátt fyrir annasaman tíma. Gluggagægir gaf mér alltaf aðeins meira í skóinn svona í tilefni af afmælinu og hann er að sjálfsögðu enn í dag uppáhaldsjólasveinninn. Desember var stútfullur af heimsóknum, bæjarferðum, bakstri og fjöri. Á Þorláksmessu fengum við systkinin alltaf ný rúmföt og náttföt. Ég var alltaf ótrúlega spennt fyrir því. Mamma var algjör snillingur í að velja mýkstu efnin og ég man ennþá eftir því hvað mér þótti notalegt að vakna á aðfangadag í nýju rúmfötunum og finna jólailminn úr eldhúsinu.“

Börn á öllum aldri vilja vera fín á jólunum.
Börn á öllum aldri vilja vera fín á jólunum.

Selur kjólana sem fræga fólkið elskar

Hvernig eru kjólarnir sem þið seljið?

„Við leggjum mikla áherslu á að selja vönduð föt sem börnum finnst þægilegt að vera í. Fötin koma í mildum og fallegum litum sem klæða alla vel. Kjólarnir okkar eru einstaklega vandaðir og tímalausir. Þeir eru frá hollenska merkinu Dolly by Le Petit Tom. Fatamerkið er þekkt um allan heim og vinsælt á meðal stórstjarna á borð við Kardashians og Jessicu Alba.“

Eruð þið með fatnað fyrir drengi líka?

„Það er alltaf að bætast við vöruúrvalið og margt til hjá okkur fyrir yngstu börnin sem hentar báðum kynjum. Eins og er erum við ekki með sparifatnað fyrir drengi en hver veit – kannski það bætist við einn daginn.“

Stúlkurnar kunna vel við sig í jólafötunum.
Stúlkurnar kunna vel við sig í jólafötunum.
Fallegir kjólar geta verið skraut í barnaherbergjunum.
Fallegir kjólar geta verið skraut í barnaherbergjunum.
Fallegir sokkar gera mikið fyrir heildarútlitið.
Fallegir sokkar gera mikið fyrir heildarútlitið.
Edda er eigandi verslunarinnar Nadíu & Söru.
Edda er eigandi verslunarinnar Nadíu & Söru.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert