Portman ekki með barni

Natalie Portman.
Natalie Portman. AFP

Leikkonan Natalie Portman blés á þær sögusagnir að hún gengi nú með sitt þriðja barn. Greint var frá því fyrir helgi að Portman hefði sést með óléttukúlu á götum Sydneyborgar í Ástralíu á dögunum. 

Portman opnaði sig um fréttirnar á Instagram þar sem hún sagðist alls ekki vera ólétt. Hún gagnrýndi einnig fjölmiðla fyrir að vera með aðfinnslur við líkama hennar. „Hey, ég er alls ekki ólétt. En það er greinilega í lagi árið 2021 að allir megi velta vöngum yfir líkama kvenna og gera athugasemdir um líkamsvöxt þeirra hvenær sem er!“ skrifaði Portman.

Portman á tvö börn með eiginmanni sínum Benjamin Millepid, soninn Aleph og dótturina Amaliu.

Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert