Hjónin Karitas Sveinsdóttir og Hafsteinn Júlíusson, eigendur HAF Store og HAF Studio, eiga von á sínu öðru barni í sumar. Karitas greindi frá gleðitíðindunum á samfélagsmiðlum í gærkvöldi.
„Við getum ekki beðið eftir að hitta litlu systur í júlí,“ skrifaði Karitas og birti mynd af fjölskyldunni. Fyrir eiga þau Karitas og Hafsteinn dótturina Úlfhildi sem er sjö ára.
Barnavefur mbl.is óskar fjölskyldunni til hamingju.