Vill gefa föður sínum og fyrrverandi barn

Saffron Drewitt-Barlow ásamt Valentinu systur sinni.
Saffron Drewitt-Barlow ásamt Valentinu systur sinni. Skjáskot/Instagram

Hin 21 árs gamla Saffron Drewitt-Barlow á fræga feður en þeir eru gjarnan kallaðir fyrstu samkynhneigðu feðurnir í Bretlandi. Ástæðan er sú að þeir voru fyrstir til að vera báðir löglega skráðir feður barna sinna. Feður hennar eru hættir saman og annar faðir hennar byrjaður með fyrrverandi kærasta hennar, Scott Hutchison, og á með honum barn. 

Saffron Drewitt-Barlow hefur viðrað þá hugmynd að hjálpa pabba sínum og sínum fyrrverandi að eignast annað barn og veita þannig litlu systur sinni systkini. Hún hefur bæði talað um að gefa þeim egg sem hún er nú þegar búin að frysta eða ganga með barnið. Sjálf varð hún til með hjálp egggjafa og staðgöngumóður.

Samsetta fjölskyldan býr öll saman á herragarði í Flórída í Bandaríkjunum. Fyrrverandi hjónin Barrie og Tony Drewitt-Bar­low  búa þar ásamt fyrrverandi kærastanum Hutchison. Tvíburabróðir Saffron Drewitt-Barlow býr einnig í húsinu sem og bróðir þeirra Orlando og tvíburarnir Jasper og Dallas. Stúlkan Valentina er yngst en feður hennar eru þeir Barrie Drewitt-Barlow og Scott Hutchison.

Saffron Drewitt-Barlow segir húsið vera stórt og nóg plass sé fyrir alla. Hún og hinn faðir hennar samþykktu sambandið áður en þeir Barrie-Drewitt-Barlow og Scott Hutchison byrjuðu saman. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert