Mæðgurnar Katrín hertogaynja af Cambridge og Karlotta prinsessa eru ekki bara líkar í útliti heldur eru þær líka með sama ávana. Aðdáendur bresku konungsfjölskyldunnar komu auga á kæk mæðgnanna þegar Katrín fiktaði við hár sitt í byrjun fjarfundar sem birtist á netinu á dögunum.
Katrín var með hárið í tagli á fundinum. Hún tók í taglið, sneri í hring og setti það aftur á sinn stað. Karlotta prinsessa fiktaði á svipaðan hátt í hári sínu fyrsta skóladaginn sinn í byrjun september árið 2019. Sameiginlegur kækur þeirra mæðgna er ótrúlega sætur.
Hér fyrir neðan má annars vegar sjá myndskeið af Katrínu fikta í hárinu eftir tíu sekúndur.
Hér fyrir neðan má sjá Karlottu fikta á sama hátt í hárinu sínu eftir 40 sekúndur.
Aðdáendasíða konungsfjölskyldunnar birti fyrst myndskeið af mæðgunum.