Hildur Vala og Jón Ólafs eiga von á barni

Hildur Vala Einarsdóttir og Jón Ólafsson eiga von á barni.
Hildur Vala Einarsdóttir og Jón Ólafsson eiga von á barni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tónlistarhjónin Hildur Vala Einarsdóttir og Jón Ólafsson eiga von á barni á árinu. Hildur Vala tilkynnti gleðifréttirnar á Facebook í dag. 

„Ævintýrin gerast enn! Þessi þrjú eru mjög spennt fyrir litlu systkini í sumar og það ríkir mikil gleði og hamingja hér á bæ,“ skrifaði Hildur við mynd af systkinunum Jökli, Kára og Þórhildi með sónarmynd í höndum. 

Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju!



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert