Barnsmissirinn gerði út af við sambandið

Barnsmóðir Lamars Odom, Liza Morales, segir að barnsmissirinn hafi gert …
Barnsmóðir Lamars Odom, Liza Morales, segir að barnsmissirinn hafi gert úti um sambandið. Rich Fury

Barnsmóðir körfuboltamannsins Lamars Odoms, Liza Morales, segir að sorgin sem fylgdi barnsmissi þeirra Odoms hafi gert út af við samband þeirra. Odom og Morales misstu son sinn Jayden árið 2005 þegar hann var aðeins sex mánaða gamall en andlát hans var skilgreint sem vöggudauði. 

Jayden var þriðja barn foreldra sinna. 

Í kjölfar andláts hans tókst Odom á við sorgina með gríðarlegri fíkniefnaneyslu og djammi. Þau hættu saman stuttu seinna. 

„Ég fattaði að ég missti Lamar þegar sonur okkar Jayden lést. Við tókumst á við sorgina á svo mismunandi hátt,“ sagði Morales í viðtali við Page Six í vikunni. 

Odom spilaði með körfuboltaliðinu Los Angeles Lakers þegar Jayden féll frá en Morales hafði flutt til borgarinnar til að vera með honum þegar hann gekk til liðs við Lakers. Hún ákvað að eyða meiri tíma í New York eftir fráfall Jaydens. 

„Ég fór að heyra fullt af sögum. Fólk kom til mín, vitandi að ég er móðir barna hans, og sagði mér að ég þyrfti að passa Lamar og „hvíta dótið“. Þannig að ég vissi af þessu, en ég gat ekki haft áhyggjur af því. Mig langaði bara til að einbeita mér að sjálfri mér og þess vegna ákvað ég að vera lengur í New York,“ sagði Morales. 

Hún segir að hún hafi verið að takast á við sorgina og verið þunglynd í tvö ár án þess að vita það. Hún segir að margir tali ekki um þetta, sérstaklega fólk með hennar litarhaft og í hennar fjölskyldu. Hún fór að lokum til læknis, fékk greiningu og fór að hitta sálfræðing. 

Odom kvæntist Khloé Kardashian fjórum árum eftir andlát sonar síns en þau höfðu aðeins þekkst í einn mánuð fyrir brúðkaupið.

„Það særði mig á þeim tíma að vita af hjónabandinu. Hann var að fara gifta sig og sagði mér það í smáskilaboðum. Ég hef þekkt hann frá því ég var 15 ára. Ég á meira skilið en smáskilaboð,“ sagði Morales. 

Odom og Kardashian skildu árið 2016 eftir að hann var gómaður á hóruhúsi árið áður. Í nóvember á síðasta ári sleit hann trúlofun sinni við einkaþjálfarann Sabrinu Parr en þau höfðu verið saman í rúmt ár. Hann hefur stigið fram og greint frá því að hann glími bæði við eiturlyfja- og kynlífsfíkn.

Morales segir að þótt Odom sé einhleypur í dag hafi hún ekki hug á að taka upp þráðinn. „Sá bátur sökk fyrir löngu. Önnur manneskjan fullorðnaðist, hin ekki.“

Khloé Kardashian og Lamar Odom.
Khloé Kardashian og Lamar Odom. mbl.is/Cover media
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert