Beatrice prinsessa greindi frá því á dögunum að hún ætti von á barni. Mánuði fyrir tilkynninguna mætti prinsessan í jarðarför afa síns en dró athyglina frá óléttunni með nýrri hárgreiðslu.
Móðirin verðandi var í svartri kápu í jarðarförinni með belti um sig miðja. Sítt hár hennar var í tagli og var erfitt að veita taglinu ekki athygli. Þar með beindi hún allri athygli aðdáenda sinna og fjölmiðla að hárinu.
Beatrice prinsessa er ekki sú fyrsta í konungsfjölskyldunni sem breytir um hárgreiðslu þegar hún verður ólétt. Katrín hertogaynja var vön að breyta um hárgreiðslu þegar hún átti von á sér en hún á þrjú börn.
Beatrice prinsessa og eiginmaður hennar Edoardo Mapelli Mozzi eiga von á sínu fyrsta barni saman í haust en hjónin gengu í það heilaga í júlí á síðasta ári. Fyrir á Mapelli Mozzi einn son.