Anna Ýr Johnson lögfræðinemi og Páll Magnús Pálsson varaformaður SUS gáfu dóttur sinni nafn um helgina. Litla stelpan fékk nafnið Hildur Ellen. Foreldrarnir greindu frá nafni barnsins á samfélagsmiðlum. Dóttirin kom í heiminn hinn 21. apríl.
Anna Ýr og Páll Magnús eru ungt fólk á uppleið en þau eiga það sameiginlegt að eiga áberandi foreldra. Anna Ýr er dóttir Ágústu Johnson framkvæmdastjóra Hreyfingar og er stjúpfaðir hennar Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. Faðir Páls Magnúsar er Páll Magnússon þingmaður.
Barnavefurinn óskar Önnu, Páli og Hildi Ellen til hamingju með nafnið!