Íslandsvinirnir og Bachelor-hjónin Arie Luyendyk og Lauren Burnham eignuðust tvíbura á dögunum. Þau fengu eitt af hvoru kyni, en stelpan heitir Senna James og strákurinn Lux Jacob. Hjónin eru miklir Íslandsvinir en þau komu í heimsókn til landsins fyrir þremur árum.
Burnham var með fæðingararmbandið í tvær vikur eftir fæðingu og samkvæmt Instagram-færslu segist hún vera í skýjunum með tvíburana og viti ekki hvaða dagur er. Hjónin eiga fyrir dótturina Alessi sem varð tveggja ára í lok maí. Foreldrarnir eru ekki feimnir við að deila lífi sínu með almenningi en þau hafa útbúið Instagram-síður fyrir öll börnin sín.