Ráðherrar ræstu Göngum í skólann

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, Lilja …
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Aðalbjörg Ingadóttir, skólastjóri Norðlingaskóla og Viðar Garðarsson, formaður almenningsíþróttasviðs ÍSÍ.

Göngum í skólann var sett í Norðlingaskóla í morgun að viðstöddum góðum gestum. Meginmarkmið Göngum í skólann er að hvetja nemendur og foreldra á Íslandi til að ganga, hjóla eða nota annan virkan ferðamáta til og frá skóla, hvetja til aukinnar hreyfingar og fræða börn um ávinning reglulegrar hreyfingar. 

Þrír ráðherrar tóku þátt í dagskránni í Norðlingaskóla. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hvatti nemendur til að vera virk í lífinu og vera dugleg að hreyfa sig. Því næst kenndi Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra nemendum að segja „göngum í skólann“ á táknmáli og vakti það mikla lukku. Næstur tók Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, til máls og hvatti hann nemendur til að vera dugleg að hjóla eða ganga í skólann og draga foreldrana með sér. 

Með átakinu er ætlunin að hvetja til heilbrigðs lífsstíls fyrir alla fjölskylduna en hreyfing vinnur meðal annars gegn lífstílstengdum sjúkdómum, stuðlar að streitulosun og betri sjálfsmynd. Einnig er markmiðið að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og kenna reglur um öryggi á göngu og á hjóli. Þar að auki er markmiðið að draga úr umferð við skóla og stuðla að betra og hreinna lofti ásamt öruggari og friðsælli götum og hverfi. Um leið er verið að stuðla að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál: Hversu gönguvænt umhverfið er og hvar úrbóta er þörf.

Í ár tekur Ísland þátt í 15. skipti í alþjóðlega verkefninu Göngum í skólann. Verkefnið hófst í Bretlandi árið 2000 og hefur þátttaka stöðugt farið vaxandi. Hér á landi fer skráning skóla mjög vel af stað og auðvelt er fyrir skóla að bætast í hópinn. Á alþjóðavísu er Göngum í skólann mánuðurinn í október og alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn er 6. október. Vegna birtu og veðuraðstæðna fer Göngum í skólann verkefnið fram hér á Íslandi í septembermánuði og því lýkur á alþjóðlega Göngum í skólann deginum þann 6. október.

Þeir sem að verkefninu standa hérlendis eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneytið, Embætti landlæknis, Ríkislögreglustjóri, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Samgöngustofa og Landssamtökin Heimili og skóli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert