Leikkonan Scarlett Johansson og eiginmaður hennar Colin Jost eignuðust son á þessu ári. Jost segir að móðir hans hafi átt erfitt með nafnavalið en nafnið minnir helst á áfengan drykk. Hún stakk meðal annars upp á öðru nafni.
Jost sagði fjölskyldu sína alltaf hafa verið mjög stuðningsríka en mamma hans skildi þó ekki strax þá ákvörðun að nefna barnið Cosmo. „Cosmo? Er það lokaákvörðun. Eruð þið búin að skila inn fæðingarvottorðinu?“ sagði móðir hans í þrjá til fjóra daga eftir fæðinguna. Hún benti þeim til að mynda á að nafnið Cosimo væri einnig til. „Svo það gæti einnig verið möguleiki. Kannski gæti það verið alvörunafnið hans og þið gætuð enn kallað hann Cosmo,“ sagði Jost í spjallþætti Seths Meyers.
Jost bað Johansson í maí 2019 eftir tveggja ára samband. Þau gengu í hjónaband fyrir ári og greindu frá komu barns á þessu ári.