Laufey Rún Ketilsdóttir, lögmaður og starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, og Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, eiga von á barni. Laufey greindi frá gleðitíðindunum á samfélagsmiðlum nú í kvöld.
„Við Beggi kynnum til leiks þessa agnarsmáu einingu sem væntanleg er í endanlegri útgáfu í byrjun sumars. Gaman að þessu,“ skrifar Laufey við færslu á Instagram.
Einingin litla er fyrsta barn þeirra Laufeyjar og Bergþórs saman en Bergþór á eina dóttur úr fyrra hjónabandi.
Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju!