Hlakkar til að verða móðir

Olivia Munn hlakkar til að verða móðir.
Olivia Munn hlakkar til að verða móðir. AFP

Leikkonan Olivia Munn segist hlakka mikið til þess að verða móðir. Munn gengur nú með sitt fyrsta barn, en hún á von á barninu með grínistanum John Mulaney. 

Í viðtali við Entertainment Tonight sagðist hún mest hlakka til þess að hitta þessa litlu manneskju og kynnast henni. 

Samband Munn og Mulaneys hefur vakið mikla athygli frá því að þau tóku saman fyrr á þessu ári. Telja margir að hann hafi haldið framhjá fyrrverandi eiginkonu sinni með Munn, en bæði hafa þau neitað því. 

Um helgina fóru af stað sögusagnir um að þau hefðu slitið sambandi sínu, en samkvæmt Entertainment Tonight er það ekki rétt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert