Guðrún Helga Sörtveit, bloggari á Trendnet, á von á sínu öðru barni með sambýlismanni sínum, Steinari Erni Gunnarssyni. Þau eiga fyrir tveggja ára gamla dóttur.
„Stóra systir,“ skrifaði Guðrún á Instagram í vikunni og birti mynd af sónarmynd og dóttur sinni. „Við erum svo spennt fyrir haustinu.“
Áður en Guðrún og Steinar eignuðust sitt fyrsta barn greindi Guðrún frá því að hún hefði fengið utanlegsfóstur. „Ég þurfti því miður að fara í skurðaðgerð og láta taka annan eggjaleiðarann minn. Ég get ekki lýst því með orðum hvað þetta var mikið sjokk að heyra 25 ára og ekki bjóst ég við að fyrsta þungunin mín myndi enda svona,“ skrifaði Guðrún meðal annars í langri færslu um reynsluna.
Nú berast gleðifréttir frá Guðrúnu og Steinari og óskar barnavefur þeim til hamingju.