Birti fyrstu fjölskyldumyndina í mánuði

Charlene prinsessa birti fyrstu fjölskyldumyndina í marga mánuði.
Charlene prinsessa birti fyrstu fjölskyldumyndina í marga mánuði. AFP

Charlene Mónakóprinsessa eyddi páskunum með eiginmanni sínum og tveimur börnum eftir að hafa verið fjarri fjölskyldunni í langan tíma vegna mikilla veikinda. Þá birti hún fyrstu fjölskyldumyndina á Instagram í fyrsta skipti í marga mánuði. 

Veikindi prinsessunnar hafa vakið mikla athygli, bæði fyrir þær sakir að hún hefur dvalið fjarri fjölskyldunni í Suður-Afríku svo mánuðum skiptir og vegna þess að höllin hefur varist allra fregna af veikindunum. Í reynd eru afskaplega fáir sem vita hvers eðlis veikindin eru. 

Charlene er gift Alberti Mónakófursta og saman eiga þau tvíburana Jacques og Gabriellu sem eru 7 ára gömul. Á Instagram sýndi Charlene frá því að þau hefðu farið í páskamessu í konungshöllinni í Mónakó.

Myndin sem Charlene birti af fjölskyldunni er fyrsta opinbera fjölskyldumyndin sem hún birtir síðan í ágúst 2021. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert