Lúðvík prins varð fjögurra ára á laugardaginn síðastliðinn. Katrín hertogaynja tók myndir af syni sínum rétt fyrir afmælið. Myndirnar voru teknar í Norfolk á Englandi fyrr í apríl.
Á myndunum má sjá Lúðvík leika sér á ströndinni í Norfolk en hertogahjónin Vilhjálmur og Katrín eiga sveitasetur í nágrenninu. Á myndunum er Lúðvík í stuttbuxum, fallegri peysu og í skyrtu innanundir eins og alvöru lítill prins. Pilturinn virðist hafa erft íþróttaáhuga foreldra sinna en á myndunum er hann að leika sér með krikketbolta.
Lúðvík er yngstur í hópi þriggja systkina og er fimmti í erfðaröð bresku krúnunnar.
Hertogaynjan af Cambridge er þekkt fyrir áhuga sinn á ljósmyndun. Hún tekur fallegar myndir af börnunum sínum sem eru yfirleitt notaðar til þess að senda almenningi og fjölmiðlum þegar börnin eiga afmæli.