Þjáist af bjúg á meðgöngunni

Kelly Osbourne á von á sínu fyrsta barni.
Kelly Osbourne á von á sínu fyrsta barni. AFP

Meðgangan fer ekki blíðum höndum um Kelly Osbourne. Bjúgur virðist hrjá hana og hún þurfti til dæmis frá að hverfa úr sundlaugapartíi til þess að setja á sig þrýstingssokka.

„Ekkert fær mann til þess að líða meira ólétt en að þurfa að yfirgefa sundlaugapartí til þess að setja á sig þrýstingssokka því allt í einu eru ökklarnir á stærð við trjádrumb,“ segir Osbourne í færslu sinni á Instagram Stories og birtir mynd af sér með fætur upp í loft í sokkunum góðu.

Osbourne tilkynnti um óléttuna í maí síðastliðnum þannig að það er eflaust farið að stytta í komu erfingjans. Barnsfaðir hennar er Sid Wilson meðlimur rokkhljómsveitarinnar Slipknot.

Þetta er fyrsta barn pars­ins en Os­bour­ne er 37 ára en Wil­son 45 ára. Parið hef­ur þekkst lengi en ný­lega orðið ást­fang­in. Os­bour­ne kall­ar Wil­son sinn besta vin og sálu­fé­laga. 

Os­bour­ne hef­ur áður tjáð sig um að langa í börn en bar­átta henn­ar við fíkni­sjúk­dóm setti strik í reikn­ing­inn og rændi hana dýr­mæt­um tíma til að lifa líf­inu.

Kelly Osbourne og barnsfaðir hennar Sid Williams.
Kelly Osbourne og barnsfaðir hennar Sid Williams. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert