Stíll yfir litla bróður

Mæðgurnar True Thompson og Khloé Kardashian.
Mæðgurnar True Thompson og Khloé Kardashian. Skjáskot/Instagram

Þótt sonur Khloé Kardashian og Tristans Thompsons fái lítið að vera í sviðsljósinu á instagramsíðu móður sinnar og raunveruleikaþáttum fjölskyldunnar fær hann almennilegan vagn. Kardashian birti mynd af dóttur sinni, True Thompson, að keyra vagninn sem er rándýr og frá hátískumerkinu Dior. 

Kardashian og Thompson hafa enn ekki gert nafn sonarins opinbert, en hann kom í heiminn á þessu ári. Staðgöngumóðir gekk með drenginn litla, sem er annað barn parsins saman. Hann fæddist skömmu eftir að þau hættu saman. 

Dior-vagninn kostar á gengi dagsins í dag rúmar 700 þúsund krónur. Vagninn er mjög vinsæll á meðal stjarnanna í Los Angeles um þessar mundir en rapparinn Cardi B notar einmitt eins vagn. 

Systir Kardashian, Kylie Jenner, hefur einnig sýnt eins vagn á sínum samfélagsmiðlum, en hún eignaðist son í febrúar.

Khloé Kardashian birti myndband af dóttur sinni ýta litla bróður …
Khloé Kardashian birti myndband af dóttur sinni ýta litla bróður í Dior-vagni. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert