Stal ferðatösku með 30 milljónum í

Þorparinn vissi að verðmæti voru í töskunni.
Þorparinn vissi að verðmæti voru í töskunni. mbl.is/Colourbox.dk

Starfsmaður flugfélagsins Delta á JFK-flugvellinum í New York var gripinn glóðvolgur í öryggismyndavélakerfi við að stela tösku. Maðurinn sem heitir Quincy Thorpe var handtekinn í lok september. Þjófurinn tók ekki töskuna af handahófi enda var óvenjuhá peningaupphæð í töskunni. 

Fram kemur á vef CNN að um 250 þúsund Bandaríkjadalir í reiðufé hafi verið í töskunni eða rúmlega 30 milljónir. Nú kann einhver að spyrja sig hver innriti eiginlega tösku með mörgum milljónum í. Svarið við þeirri spurningu fylgir ekki sögunni. Thorpe þessi átti að koma átta töskum fyrir en þegar vélin lenti í Miami voru töskurnar aðeins sjö. 

Thorpe tilkynnti sig veikan tvo daga í röð eftir þjófnaðinn sem átti sér stað 24. september. Þegar Thorpe var yfirheyrður játaði hann að hafa haft vitneskju um að verðmæti væru í töskunni.
Delta sendi frá sér tilkynningu sem segir framferði Thorpe óásættanlegt og endurspegli engan veginn fagmennsku og gildi annarra starfsmanna Delta. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert