Drottningin ferðast alltaf með þetta

Yðar hátign vill fá sitt earl-grey te.
Yðar hátign vill fá sitt earl-grey te. AFP

Elísabet Englandsdrottning er alvöru Breti því það eina sem hún biður um að sé örugglega til staðar þegar hún leggur land undir fót er að það sé earl grey-te um borð. 

Í nýrri heimildarmynd, Secrets Of The Royal Flight, er fjallað um ferðavenjur konungsfjölskyldunnar. Þar kemur fram að þetta sé hennar eftirlætis drykkur um borð og að starfsfólk þurfi að tryggja að nóg af tei sé um borð. Starfsfólkið þarf líka að tryggja að teið komi með drottningunni þangað sem hún er að fara svo hún geti fengið sér bolla við og við. 

Seinniparts drekkutíminn er uppáhaldsmáltíð drottningarinnar og þá vill yðar hátign fá sitt earl grey te og eggjasamlokur.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert