Fór í óvenjulegt ferðalag heima hjá sér

Dana Nicole Jondahl fór í óvenjulegt ferðalag á dögunum.
Dana Nicole Jondahl fór í óvenjulegt ferðalag á dögunum. Samsett mynd

Óvenjulegt ferðamyndband sem Dana Nicole Jondahl birti á Facebook-síðu sinni hefur farið á flug í netheimum. Ekkert varð úr ferðaplönum hennar vegna kórónuveirunnar en hún lét þó ekki segjast og fór þess í stað í flugferð heima hjá sér. 

Jondahl ætlaði að fara í ferðalag í tilefni afmælis síns. Hún þurfti aðeins að breyta áætlunum sínum og fór í ferðalagið heima hjá sér og myndaði. Hún sleppti engum smáatriðum eins og tveggja mínútna langt myndbandið sýnir en hún leikur sjálf allt fólkið sem hún hittir. 

Hin hugmyndaríka Jondahl fer á flugvöllinn í myndbandinu og fer meðal annars í gegnum vegabréfaeftirlit og öryggisleit. Hún þarf líka að bíða á flugvellinum áður en henni er hleypt um borð. Hún notar uppblásna sundlaug í flugvélalíki sem flugvél og fær þjónustu um borð frá flugfreyju. Þegar á áfangastað er komið bíður henni manneskja sem óskar henni til hamingju með afmælið. 

„Þau sögðu mér að ferðast ekki fyrir afmæli mitt þetta árið,“ skrifaði Jondahl þegar hún birti myndbandið. Jondahl skrifaði í athugasemd að hún hefði ekki búist við vinsældunum og sagðist ekki trúa því hversu margir hefðu horft á myndbandið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert