Birgitta Haukdal leigir húsbíl í sumarfríinu

Hér er Birgitta ásamt syni sínum.
Hér er Birgitta ásamt syni sínum.

„Í minningunni var það nánast hverja helgi á sumrin sem pakkað var í skottið á bílnum, strax eftir vinnu á föstudögum, og brunað af stað í útilegur,“ segir Húsvíkingurinn Birgitta Haukdal sem á margar yndislegar æskuminningar úr sveitaferðum í sumarsælu á Norðurlandi. 

Foreldrar hennar, þau Anna Haukdal og Brynjar Víkingsson, tilheyrðu stórum vinahópi og Birgitta segir að stemningin á tjaldstæðunum hafi verið dásamleg í denn þar sem hún lék sér í náttúrunni með systkinum og vinum, sumardægrin löng.

„Við fjölskyldan ferðuðumst mikið um landið en langoftast fórum við í útilegur í Hljóðaklettum, Ásbyrgi og Vaglaskógi. Auðvitað var ekkert um fellihýsi og hjólhýsi á tjaldstæðunum í þá daga eins og tíðkast í dag. Bara gamaldags tjöld, útilegustólar og prímusar ásamt leikjum og söng,“ segir Birgitta sem hefur fetað í fótspor foreldra sinna og er dugleg að ferðast um landið með eiginmanninum Benedikt Einarssyni og börnunum þeirra, þeim Sögu Júlíu 4 ára og Víkingi Brynjari 11 ára.

„Við förum norður á hverju ári. Börnin elska þessar ferðir og það gerum við líka – gætum eiginlega ekki hugsað okkur sumarið án þeirra,“ segir Birgitta og bætir við að Hljóðaklettar hafi átt sérstakan stað í hjarta hennar alveg frá því hún var barn.

„Ég á bara svo dásamlegar minningar um útilegur við Hljóðakletta. Við tókum með okkur nesti og fórum í gönguferðir, syntum í fallega læknum og svo enduðu dagarnir á hópsöng og leikjum þar sem fullorðnir og börn tóku saman þátt. Hljóðaklettar eru stórkostleg náttúruperla og ég hef margoft farið með fjölskylduna og börnin þangað, ýmist í útilegur eða gönguferðir.“

Birgitta gerir leikfimisæfingar úti í náttúrunni.
Birgitta gerir leikfimisæfingar úti í náttúrunni.

Uppáhaldsgönguleiðin er um Hljóðakletta

Það eru ekki bara góðar æskuminningar sem hafa áhrif á upplifun Birgittu af Hljóðaklettum og umhverfinu þar í kring. Hún segir að þar liggi einhver óútskýranlega góð orka í loftinu.

„Ég fyllist alltaf af lotningu þegar þangað er komið og það er engu líkt að tengjast náttúrunni á þessum stað.“

Birgitta segir að iðkun núvitundar skipti sig miklu máli og nefnir í því samhengi hversu gott það sé að upplifa hana í faðmi náttúrunnar.

„Fyrir mér er núvitund alveg einstaklega mikilvæg fyrir andlega heilsu og ég er orðin voða mikil jógakona. Náttúran og útivist eru besta leið sem hægt er að hugsa sér til að hlaða batteríin og tengjast sjálfum sér. Þegar ég fer í fjallgöngur þá gæti ég þess alltaf að staldra við, taka inn náttúruna og tæma hugann. Það er svo mikilvægt að stoppa. Stundum tek ég líka nokkrar jógateygjur og leyfi börnunum að hlæja að mér á meðan,“ segir hún og skellir upp úr. „Uppáhaldsgönguleiðin mín hefur alltaf verið um Hljóðakletta og sú lengri, þar sem gengið er frá Hljóðaklettum niður í Ásbyrgi, er alveg stórkostleg,“ segir Birgitta.

Manndómsvígsla í Ásbyrgi

Hún rifjar upp skemmtilega sögu frá Ásbyrgi sem eiginlega mætti líta á sem hálfgerða manndómsvígslu í boði náttúrunnar.

„Ég var svona sirka átta ára. Var í útilegu með fjölskyldunni og var þarna eitthvað á vappi þegar ég villtist allt í einu og tapaði alveg áttum. Í minningunni var ég þarna ráfandi um í gríðarlega stórum og yfirþyrmandi skógi þó þetta sé í raun bara lítill birkiskógur,“ segir hún og hlær. „Ég man að mér leið eins og ég væri föst í völundarhúsi og vissi ekkert í hvaða átt ég átti að fara. Ekki bætti það svo úr skák þegar ég gekk allt í einu að gömlu tófugreni og allt í kring voru nöguð kindabein. Þarna varð ég alveg rosalega hrædd, tók sprettinn og hljóp og hljóp þar til ég rataði til baka. Það eina sem ég sá fyrir mér var Mikki refur og það var auðvitað alls ekki í boði að lenda í klónum á honum.“

Mælir með GeoSea-böðunum á Húsavík

Spurð að því hvort hún mæli með einhverjum sérstökum stöðum á Norðurlandi sem enginn ætti að missa af nefnir hún meðal annars GeoSea-böðin á Húsavík. „Það eru ekki mörg ár síðan þau voru opnuð og ég hvet alla til að koma þar við. Á Mývatni er svo hægt að fara í Lónið sem er virkilega fallegt og í raun svona lítil útgáfa af Bláa lóninu. Þar eru dásamlegir pottar með stórkostlegu útsýni út yfir sjóinn, yfir Kinnarfjöllin og eyjarnar um kring. Skammt undan er svo hið ótrúlega fuglalíf sem býr í klettunum svo maður þarf ekki að fara langt til að eiga stórkostlega upplifun,“ segir Birgitta sem er mikil útilegukona og hyggur á ferðir í sumar en hún er búin að leigja húsbíl fyrir sig og sína.

„Það hafa reyndar fleiri fengið sömu hugmynd. Við ætluðum fyrst að leigja fellihýsi en þau voru alls staðar uppbókuð á leigunum á þeim dögum sem hentuðu okkur. Við enduðum því á að leigja húsbíl og erum mjög spennt,“ segir hún og hlær.

Hér er Birgitta í útilegu þegar hún var lítil stelpa.
Hér er Birgitta í útilegu þegar hún var lítil stelpa.

Sjávarréttastaður í heimilislegu húsi

Birgitta segist alltaf vera vakandi fyrir því hvað sé skemmtilegt að gera þegar ferðast er um landið. Hún leggur til að fólk komi sér fyrir á Húsavík, Akureyri eða Dalvík og fari svo í skemmtilegar dagsferðir þaðan. Sjálf dvelur hún yfirleitt á Húsavík með sínu fólki enda er tjaldsvæðið vel staðsett í bænum og margt skemmtilegt hægt að gera þar í kring.

„Sundlaugin er til dæmis virkilega góð fyrir bæði börn og fullorðna og svo eru þarna nokkrir mjög fínir veitingastaðir. Þar nefni ég til dæmis Gamla Baukinn og Veitingastaðinn Sölku svo ekki sé minnst á Naustið sem er æðislegur sjávarréttastaður í gömlu og mjög heimilislegu húsi. Þangað förum við í hvert sinn sem við komum norður og gæðum okkur á góðum norðanfiski,“ segir Húsvíkingurinn, núvitundariðkandinn og náttúruunnandinn Birgitta Haukdal.

Mæðgurnar í fjallgöngu.
Mæðgurnar í fjallgöngu.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert